Innlent

Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við

Heimir Már Pétursson skrifar
Agnes Sigurðardóttir biskup Íslands og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands láta bæði af embætti á þessu sumri. Hann eftir átta ár og hún eftir tólf ár í embætti.
Agnes Sigurðardóttir biskup Íslands og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands láta bæði af embætti á þessu sumri. Hann eftir átta ár og hún eftir tólf ár í embætti. Vísir/Vilhelm

Agnes Sigurðardóttir biskup Íslands segir nýjan biskup ekki taka við sömu þjóðkirkjunni og hún tók við fyrst kvenna fyrir tólf árum. Niðurstaða í biskupskjöri á að liggja fyrir í hádeginu.

Seinni umferð biskupskjörs sem hófst á hádegi á fimmtudag í síðustu viku lauk klukkan tólf á hádegi. Niðurstaðan ætti að liggja fyrir um klukkan hálf eitt. Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur í Grafarvogi og Guðmundur Karl Brynjarsson sóknarprestur í Lindakirkju eru í framboði eftir að hvorki þeim né Elínborgu Sturludóttur presti í Dómkirkjunni tókst að tryggja sér meirihluta atkvæða í fyrri umferð.

Ef allt gengur að óskum mun Agnes Sigurðardóttir núverandi biskup Íslands, sem gengt hefur embættinu frá árinu 2012, taka á móti nýjum biskupi á Biskupsstofu klukkan tvö í dag. Hún segir þessi tólf ár hafa verið góðan tíma en það verði ánægjulegt að fagna nýjum biskupi.

Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands er staðráðin í að einbeita sér á ný að píanóleik þegar hún lætur af embætti. Enda hóf hún ung nám í Tónlistarskólanum á Ísafirði.Stöð 2/Baldur Hrafnkell

„Nýr biskup tekur ekki við sömu kirkju og ég gerði fyrir tólf árum. Það hefur allt breyst í kirkjunni. Það er búið að breyta skipulaginu og setja ný lög um kirkjuna,“ segir Agnes.

Margar áskoranir bíði nýs biskups bæði inn á við og út á við. Inn á við þurfi að halda góðum anda í stéttinni og kirkjunni í samstarfi við þúsundir frábærra karla og kvenna sem starfi innan kirkjunnar um allt land. Út á við eins og alltaf væri það hlutverk kirkjunnar að boða kristna trú. Þjóðkirkjan eigi enn erindi við þjóðina.

„Við erum að flytja alveg frábæran boðskap sem er mannbætandi fyrir alla. Við erum að sinna þjónustu út um allt land sem er líka mannbætandi,“ segir fráfarandi biskup. Þjóðkirkjan þjóni öllum sem það vilji og spyrji ekki hvort fólk sé í þjóðkirkjunni eða ekki.

Agnes kvíðir ekki iðjuleysinu þegar embættistíð hennar lýkur.

„Kannski skrifa ég nú eitthvað. Það getur vel verið. Ætli ég hverfi ekki bara aftur til fyrri tíðar og taki upp þá iðju sem ég hafði í æsku að spila á píanó. Það verður verkefni hjá mér að æfa upp prógram. Ég er búin að ákveða það,” segirAgnes Sigurðardóttir.


Tengdar fréttir

Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni

Eftir hádegi á morgun kemur í ljós hver fimmtándi biskup Íslands verður. Valið stendur milli Guðrúnar Karls Helgudóttur og Guðmundar Karls Brynjarssonar. Í samtali við fréttastofu segja þau tilfinninguna góða en þora ekki að spá fyrir um hver fari með sigur úr býtum.

Kjósa þarf aftur til biskups

Kjósa þarf aftur á milli þeirra Guðrúnar Karls Helgudóttur og Guðmundar Karls Brynjarssonar vegna þess að ekki fékkst meirihluti í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag í biskupskjöri. Kosið verður aftur þann 2. maí. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×